Konur í tækni

30. Ásdís Eir Símonardóttir, driffjöður átaksverkefnis Vertonet og sjálfstætt starfandi ráðgjafi


Listen Later

Gestur okkar í þessum þætti er Ásdís Eir Símonardóttir, driffjöður átaksverkefnis Vertonet og sjálfstætt starfandi stjórnenda- og mannauðsráðgjafi.

Ásamt því að kynnast Ásdísi, fræðumst við um átaksverkefnið og Playbook Vertonet, leiðarvísi að fjölbreytileika, jafnræði og inngildingu á vinnustað sem nú er í undirbúningi og er hluti af stærra átaksverkefni um að auka nýliðun kvenna og kvára í upplýsingatækni á Íslandi.

Playbook Vertonet verður ókeypis og galopið verkfæri til að auðvelda fyrirtækjum og stjórnendum í upplýsingatækni að stíga markviss skref í átt að inngildandi vinnustaðamenningu.


Í þættinum ræða Hildur og Ásdís meðal annars:

  • Upplifun Ásdísar þegar hún starfaði sem mannauðsstjóri í tæknigeiranum - það vantar fólk!
  • Hvað hlutfallslega fáar konur vinna í tæknistörfum á Íslandi
  • Hvað Vertonet ætlar að gera til að hafa áhrif
  • Átaksverkefnið hingað til og hvað búið er að gera
  • Afurð í smíðum: Hvað er eiginlega Playbook Vertonet?
  • Hvernig áhugasöm geta lagt hönd á plóg
  • Hvað gerist 13. nóvember? Buildathon og dagskrá í streymi
  • Hvernig verður hægt að nýta Playbook Vertonet til að auka inngildingu fyrir öll í upplýsingatækni
  • Ásdís nefnir bæði hlaðvarp og bók í viðtalinu sem hún mælir með:

    Fixable (hlaðvarp)

    Likable Badass: How Women Get the Success They Deserve (bók)

    ---------------------------------------------------------------

    Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?

    Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:

    LinkedIn

    Facebook

    Instagram

    ---------------------------------------------------------------

    Um hlaðvarpið

    Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir


    Styrktaraðilar: Advania og Sýn


    ...more
    View all episodesView all episodes
    Download on the App Store

    Konur í tækniBy Vertonet - samtök kvenna í upplýsingatækni á Íslandi