Schubert og Schober Franz von Schober var náinn vinur tónskáldsins Franz Schuberts og samdi ljóð við sum sönglög hans, til dæmis „An die Musik“ (Til tónlistarinnar). Schober var efnaður og gat því styrkt tónskáldið með ýmsu móti, til dæmis bjó Schubert oft hjá honum. Ekki voru þó allir vissir um að vináttan við Schober væri heppileg fyrir Schubert, sumir samtíðarmenn þeirra óttuðust að Schober drægi Schubert með sér út í slark og drykkju. Í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 30. mars verður fjallað um vináttu þeirra Schobers og Schuberts og flutt lög sem Schubert samdi við ljóð eftir Schober. „Þér, kæri Schober, mun ég aldrei gleyma, því það sem þú hefur verið mér getur enginn annar orðið,“ skrifaði Schubert í bréfi til Schobers 1824. Vinátta þeirra hélst til dauðadags Schuberts árið 1828, en Schober varð hins vegar gamall maður og lést árið 1882.