Í þættinum verður leikið hið fræga „Adagio í g-moll“ eftir barokktónskáldið Tomaso Albinoni. Sannleikurinn er sá að verkið er ekki nema að nokkru leyti eftir Albinoni og jafnvel vafamál að það sé yfirleitt eftir hann. Tónlistarfræðingurinn Remo Giazotto gaf verkið út árið 1958 og sagði að það væri útsetning sín á broti úr kirkjusónötu eftir Albinoni sem hann hefði fundið í gömlu handriti. Handritið kom hins vegar aldrei fyrir almenningssjónir og sumir halda því fram að það hafi aldrei verið til, heldur sé Giazotto höfundur verksins. Í þættinum verður einnig leikinn Kanón eftir Johann Pachelbel og flutt önnur verk eftir Albinoni og Pachelbel.