Fyrir 50 árum, 26. maí 1968, var skipt úr vinstri yfir í hægri umferð hér á Íslandi og var af því tilefni efnt til samkeppni um lög við texta sem Kristján frá Djúpalæk hafði ort um breytinguna. Öll lögin í samkeppninni fengu nafnið „H-lagið“ og átti Þorvaldur Halldórsson verðlaunalagið. Til er hljóðritun af lagi Þorvaldar og 5 öðrum lögum úr samkeppninni og verða þau flutt í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 31. maí kl. 14.03. Höfundar hinna laganna fimm voru Birgir Marinósson, Birgir Helgason, Magnús Pétursson, Sigfús Halldórsson og Jón Múli Árnason. Ragnar Bjarnason söng öll lögin með hljómsveit sinni. Í þættinum verða einnig leikin brot úr útsendingu Ríkisútvarpsins á H-daginn (eins og dagurinn þegar skipt var yfir í hægri umferð var kallaður). Jón Múli Árnason var þá á þularvakt og skipti frá hljóðstofu á Skúlagötu yfir á fréttamann í bíl þegar kom að því að aka frá vinstri vegarhelmingi yfir á þann hægri kl. 6 um morguninn.