Það hefur víst ekki farið fram hjá mörgum Íslendingum að á síðasta áratug hefur erlend hátíð numið land á Íslandi, „Hrekkjavaka“ sem er haldin 31. október. Fluttar verða tónsmíðar sem tengjast hrekkjavöku, meðal annars „Halloween“ eftir Charles Ives og tónlist eftir Conrad Salinger og Roger Edens við hrekkjavökuatriði kvikmyndarinnar „Meet me in St. Louis“ frá 1944. Þó að hátíðin sé ný hér á Íslandi er til íslensk hrekkjavökusaga sem var skrifuð á árunum 1919-20 og í þættinum verða lesnir kaflar úr henni. Hún er eftir vestur-íslenska rithöfundinn Jóhann Magnús Bjarnason, en Vestur-Íslendingar kynntust hrekkjavöku snemma í hinum nýju heimkynnum sínum vestra og héldu jafnvel upp á hana sjálfir. Lesari í þættinum er Jóhannes Ólafsson og umsjónarmðaur Una Margrét Jónsdóttir.