Sign up to save your podcasts
Or

Gestur þáttarins er Björn Berg Gunnarsson, sem er reynslumikill fjármálaráðgjafi með áralanga reynslu af því að hjálpa fólki að skilja peninga, áhættu og framtíðarskipulag.
Við ræðum fjármál út frá mörgum hliðum og setjum þau í samhengi við daglegt líf. Hvernig breytist nálgun okkar þegar ábyrgðin eykst, börn koma til sögunnar og framtíðin fer að skipta meira máli en næsti mánuður. Við förum yfir hvernig gott er að tala við börnin okkar um peninga, hvaða gildi skipta máli í fjármálauppeldi og hvernig við getum lagt grunn að heilbrigðu sambandi við fjármál strax á unga aldri.
Í þættinum er einnig farið yfir fjármálalæsi og venjur sem styðja við betri ákvarðanatöku. Við ræðum neyslulán, húsnæðislán og þá algengu gildrur sem fólk fellur í þegar skammtímahugsun fær að ráða för. Einnig er fjallað um fjármál í ellinni og hvers vegna ákvarðanir sem teknar eru á þrítugs- og fertugsaldri geta haft afgerandi áhrif á lífsgæði síðar.
Þessi þáttur er í boði:
💡Shutterrental - Leiga á kvikmyndatöku-, ljós- og hljóðbúnaði fyrir skapandi verkefni.
🎥Blindspot framleiðsla - Auglýsingagerð og efnissköpun fyrir þitt fyrirtæki.
By Viktor A. BogdanskiGestur þáttarins er Björn Berg Gunnarsson, sem er reynslumikill fjármálaráðgjafi með áralanga reynslu af því að hjálpa fólki að skilja peninga, áhættu og framtíðarskipulag.