Í fimmta þætti rætt við Matthildi Guðnýju Guðmundsdóttur kennara og eiginkonu Jóns Freys Þórarinssonar skólastjóra Laugarnesskóla. Hún er afar ósátt við bók Bjargar Guðrúnar Gísladóttur Hljóðin í nóttinni og lýsingar hennar á samskiptum þeirra Jóns. Bjarni, sem vill ekki segja til eftirnafns, segir frá ofbeldi Skeggja, í kennslustundum og svo í einkatímum á laugardögum. Hann segir jafnframt frá því að hann hafi lamið Skeggja þegar hann hitti hann á götu. Hjálmar Gunnar Sigmarsson segir frá áhrifum kynferðisofbeldis á drengi og hvernig þau sár gróa ekki. Sólveig Ólafsdóttir ræðir þögnina um Skeggja og hvað það sé undarlegt, að samkennari og samstarfsmaður Skeggja, Jón Freyr Þórarinsson hafi ekki skrifað um hann minningagrein.
Viðmælendur:
Matthildur Guðný Guðmundsdóttir
Bjarni
Hjálmar Gunnar Sigmarsson
Sólveig Ólafsdóttir
Umsjón: Þorsteinn J.
Rannsóknarvinna: Sólveig Ólafsdóttir
Vakin er athygli á því að í þáttunum er fjallað um málefni sem getur reynst erfitt fyrir viðkvæma hlustendur.