Biskupsmálið

5. þáttur


Listen Later

Í þessum þætti beinist athyglin að því sem tók við eftir að Guðrún Ebba steig fram opinberlega með sögu sína í bókinni Ekki líta undan, sem Elín Hirst skráði. Fjallað er um þau viðbrögð sem mættu henni í kjölfarið, ekki síst frá eigin fjölskyldu, þegar frásögn hennar var dregin í efa opinberlega og hún ásökuð um rangar eða falskar minningar. 

Í þættinum svarar Guðrún Ebba í fyrsta sinn opinberlega ásökunum sem settar voru fram af bróður hennar, Skúla Sigurði Ólafssyni, í Kastljósi árið 2011 og síðar af mágkonu hennar, Sigríði Björk Guðjónsdóttur, í fjölmiðlaviðtali árið 2012. Um er að ræða áhrifamikinn vitnisburð um það hvað það getur kostað að segja frá ofbeldi þegar andstaðan kemur úr innsta hring.

Annar gestur þáttarins er Elín Hirst, fjölmiðlakona og höfundur bókarinnar, sem ræðir bókaskrifin, viðbrögð samfélagsins og þann lærdóm sem draga má af sögu Guðrúnar Ebbu. 

Þátturinn fjallar jafnframt um hvernig hugtakið „falskar minningar“ hefur verið notað í opinberri umræðu til að draga úr trúverðugleika þolenda, og setur þá umræðu í sögulegt og fræðilegt samhengi.

Fimmti þáttur er þannig bæði framhald fyrri frásagnar og uppgjör við afneitun, fjölskyldurof og vald. Hann varpar ljósi á það hvernig þolendur standa oft ekki aðeins frammi fyrir eigin áföllum, heldur einnig höfnun, tortryggni og kerfisbundinni vörn þeirra sem vilja ekki horfast í augu við sannleikann.

Þættirnir koma út vikulega, á sunnudögum. 

Umsjón: Gabríela Bryndís Ernudóttir.

Fréttaefni fengið frá Rúv. 

 

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

BiskupsmáliðBy Gabríela Bryndís Ernudóttir