Í þessum þætti ræðir Jafet Máni við Friðrik Guðjónsson sem er fæddur árið 1980. Hann stofnaði fyrirtækið Prentagram árið 2013 sem hann seldi svo síðar meir. Í dag er hann með fyrirtækið Feed the viking sem gengur gífurlega vel. Í þáttunum Fram á við talar Jafet Máni við fólk sem hefur náð langt í sínum geira eða skarað fram úr í íslensku viðskiptalífi svo eftir því sé tekið.