Dordingull

532 - Krownest, Pissing Razors, August Burns Red, Gatecreeper ofl.


Listen Later

Í þætti dagsins höldum við áfram að hlusta á efni íslensku hljómsveitarinnar Krownest sem nýlega sendi frá sér sýna fyrstu þröngskífu, þar að auki heyrum við einnig meira efni af nýrri breiðskífu íslandsvinanna í Age of Woe.
Hljómsveitin Krownest samanstendur af þeim Ara Elías Arnalds (Söngur/gítar), Ótarri Proppé (Gítar), Matthíasi Stefánsyni (bassa) og Árna Jökul Guðbjartsyni (Trommur) en í lok seinustu viku sendi sveitin frá sér sýna fyrstu útgáfu, sem hlusta má á miðlum eins og Spotify.
Hljómsveitin Pissing Razor komst aftur í fréttirnar í vikunni þegar sveitin sendi frá sér lagið Waisting Away, en lagið er upprunalega eftir hliðarverkefnishljómsveitina Nailbomb. Í hljómsveitinni Nailbomb voru þeir Alex Newport úr hljómsveitinni Fudge Tunnel og Max Cavalera þá í hljómsveitinni Sepultura. Hljómsvein Nailbomb sendi frá sér aðeins eina fulla breiðskífu, Point Blank, á ferlinum í viðbót við frábæra tónleikaplötu sem tekin var upp á Dynamo hátíðinni í Hollandi, og bar nafnið Proud to Commit Commercial Suicide. Hljómsveitin Pizzin Razors var upp á sitt besta á árunum 1998 to 2000 og spilaði svokallað "Grove metal" sem hljósmveitir á borð við Pantera gerðu best árum áður. Í þessu nýja lagið má heyra í söngvaranum Steev Esquivel, sem áður söng með hljósmveitinni Skinlab frá Kaliforníu fylki.
Lagalisti
Madball - Moment of Truth
Krownest - Into the Nothing
Sólstafir - Alda Syndanna
August Burns Red - Standing In The Storm
Pissing Razors - Waisting Away (Nailbomb ábreiða)
Gatecreeper - Imposter Syndrome
Krownest - Truth
Soilent Green - Swallowhole
Gatecreeper - Amputation
AUÐN - Haldreipi Hugans
Grave Superior - Plague Superior
Type O Negative - World Coming Down
Changer - Vicious
Changer - Path Of Anguish
Changer - Keepers
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

DordingullBy RÚV