Biskupsmálið

6. þáttur - lokaþáttur


Listen Later

Í lokaþættinum er sjónum beint að langvarandi áhrifum ofbeldis og þeim lærdómi sem samfélagið getur dregið af einu stærsta uppgjörsmáli íslensks samtíma. Varpað er ljósi á hvernig afleiðingar ofbeldis geta varað í áratugi, jafnvel kynslóðir.

Í þættinum heyrast raddir fólks sem varð fyrir beinum eða óbeinum afleiðingum málsins. Guðrún Ebba segir meðal annars frá því hvað kirkjan þarf að gera til að styðja við þolendur ofbeldis. Hún segir sína skoðun á frásögn Karl Sigurbjörnssonar í ævisögu hans. 

Þór Jónsson, fyrrverandi fréttastjóri á Stöð 2, sem fjallaði mikið um Biskupsmálið á sínum tíma, segir frá ýmsum atriðum sem aldrei hafa áður komið fram. 

Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir frá því hvernig reynt var að þagga niður í Guðrúnu Jónsdóttur heitinni, þáverandi talskonu Stígamóta, þegar hún stóð með konunum opinberlega. Við ræðum einnig um hvernig tekið skal á ofbeldismálum innan fyrirtækja. 

Brynhildur G. Flóvenz, dósent emerita í lögfræði við Háskóla Íslands, og frænka Guðrúnar Ebbu, segir frá sinni upplifun af því að vera aðstandandi Guðrúnar Ebbu og hvernig hún féll sjálf í þá gryfju að trúa á sakleysi Ólafs í byrjun. 

Alfred-Wolfgang, ekkill Sigrúnar Pálínu, segir frá því þegar þau hjónin flúðu Ísland og fluttu til Danmerkur og hvernig hann hefur tekist á við sorgina eftir fráfall hennar.

Meginkjarni lokaþáttarins er hvað samfélagið geti lært af málinu. Hvernig er best að bregðast við þegar þolendur segja frá? Hvernig tryggjum við að valdastigveldi og stofnanir verði ekki notuð til að þagga niður í fólki? Og hvernig byggjum við upp samfélag sem hlustar betur, tekur þolendur alvarlega og dregur gerendur til ábyrgðar?

Þakkir fá viðmælendur og þau sem hjálpuðu við að láta þættina verða að veruleika. 

Þættirnir eru tileinkaðir öllum þeim sem hafa lifað af ofbeldi og líka þeim sem hafa fallið frá fyrir aldur fram vegna ofbeldis eða afleiðinga ofbeldis. 

Umsjón: Gabríela Bryndís Ernudóttir.

Fréttaefni fengið frá Rúv. 

 

 

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

BiskupsmáliðBy Gabríela Bryndís Ernudóttir