Skeggi

6. þáttur: Veriði blessuð og sæl


Listen Later

Í lokaþættinum er rætt við Björgu Guðrúnu Gísladóttur. Hún svarar gagnrýni Matthildar Guðnýjar Guðmundsdóttur um bókina Hljóðin í nóttinni. Silja Aðalsteinsdóttir sem var í Laugarnesskólanum í tvo vetur, útskrifaðist 1955, segir frá reynslu sinni af Skeggja. Tæknimennirnir Þórir Steingrímsson og Hreinn Valdimarsson sögðu frá samstarfi sínu við Skeggja og þáttagerð. Sr Bjarni Karlsson segir frá því að orðrómur um kynferðisbrot Skeggja hafi verið í loftinu þegar hann kom til starfa í Laugarneskirkju 1996. Ragnar Þorsteinsson fyrrv sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg ræðir um viðbrögð borgarinnar árið 2014. Mjög fáir höfðu samband við borgina vegna Skeggjamálsins. Sólveig Ólafsdóttir og Björg Guðrún Gísladóttir ræða um að málið megi ekki sofna aftur. Björg les tölvupóst frá Guðrúnu Ögmundsdóttur, þar sem hún segist ekkert geta gert í málinu árið 2017.
Viðmælendur:
Björg Guðrún Gísladóttir
Ólöf Ásta Ferestveit
Silja Aðalsteinsdóttir
Sr Bjarni Karlsson
Sólveig Ólafsdóttir
Hreinn Valdimarsson
Þórir Steingrímsson
Ragnar Þorsteinsson
Umsjón: Þorsteinn J.
Rannsóknarvinna: Sólveig Ólafsdóttir
Vakin er athygli á því að í þáttunum er fjallað um málefni sem getur reynst erfitt fyrir viðkvæma hlustendur.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SkeggiBy RÚV