4. vaktin

75. Herdís Gísladóttir - Vökudeild Barnaspítala Hringsins


Listen Later

Við fengum hana Herdísi Gísladóttir hjúkrunarfræðing til okkar til að segja okkur frá starfi Vökudeildar Barnaspítala Hringsins sem er nýburagjörgæsludeild og er sú eina sinnar tegundar á Íslandi. Deildin sinnir fyrirburum og veikum nýburum. Herdís hefur starfað þar í fjölda ár og hefur mikla þekkingu. Í dag starfar hún bæði á vökudeild og erfðadeild Landspítalans. 

Vökudeildin varð 50 ára 2. Febrúar á þessu ári svo það er einstaklega gaman að geta gefið út þátt um Vökudeild á sama tíma. 

Við hvetjum alla til að hlusta og kynna sér starfsemi Vökudeildar en þar er unnið magnað starf. Fólk sem hefur kynni af Vökudeild veit að þar vinnur fólk sem leggur sitt allt fram og sinnir fyrirburum, nýburum og við viljum segja foreldrum líka á oft mjög erfiðum tíma í þeirra lífi. 


Þessi þáttur er í boði:

-Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna. 

godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

Mobility Aid:

Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma. Lágmarksleiga er yfirleitt 3 dagar.Þau bjóða uppá útkeyrslu á Höfuðborgarsvæðinu á opnunartíma verslunar gegn 5.000kr sendingargjaldi. Einnig er send út á land á kostnað leigutaka. Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á [email protected] eða hringja í síma 578-3600.

Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is

Mobility Ehf og Sjúkratryggingar Ísland (SÍ) hafa gert samninga sín á milli um kaup á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum í ákveðnum flokkum fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.

-Sjónarhóls - Ráðgjafarmiðstöðin Sjónarhóll er fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir. Þjónustan er ókeypis og ekki er þörf á tilvísun. Það eru allir velkomnir.

Eitt helsta markmið Sjónarhóls er að stuðla að því að forráðamenn barna með stuðningsþarfir geti nýtt sér almenna lögbundna þjónustu og komist í samband við önnur úrræði sem gætu gagnast þeim.

sjonarholl.is

Childs Farm

Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína.

Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur. 

Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.

Smá um sögu Childs Farm:

Í breskri sveit árið 2010 var móðir að nafni Joanna Jensen, hún átti tvær dætur Mimi og Bellu, en þær áttu

í erfiðleikum með viðkvæma húð og exem. Joanna, eins og svo margir foreldrar, var staðráðin í að finna

lausn sem myndi hjálpa þeim að líða vel og vera hamingjusöm í eigin skinni. Þegar Joanna leitaði að

mildum, náttúrulegum og áhrifaríkum húðvörum fyrir stelpurnar sínar uppgötvaði hún gat á markaðnum

fyrir hágæða en samt hagkvæmar vörur sem voru sérstaklega hannaðar fyrir húð barna. Knúin áfram af ást til dætra sinna og samúð með foreldrum sem glíma við svipaðar erfiðleika, hóf Joanna það verkefni að

þróa sínar eigin vörur og að endingu að stofna Childs Farm, vörumerki sem myndi breyta lífi milljóna

barna og fjölskyldna þeirra að eilífu.

Sölustaðir:

Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið

ögn breytilegt eftir verslunum.


...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

4. vaktinBy Hlaðvarpið 4 vaktin