4. vaktin

80. Barnaheill - Ungheill ungmennaráð


Listen Later

Ungheill er rödd unga fólksins, ungmennaráð Barnaheilla eða Save the children á Íslandi.

Við fengum til okkar þær Miu Ðuric og Karitas Leu sem eru báðar í Ungheill til að segja okkur frá starfinu. Þær eru að vinna virkilega flott starf ásamt hinum í ráðinu. Við í samfélaginu þurfum að styðja við og efla ungmennaráð og hlusta á þeirra raddir og vinna saman. 

Að hlusta á þær segja frá starfinu og vita að við erum með svo öflugt ungt fólk að vinna að bættu samfélagi er ekki bara skemmtilegt heldur hvetjandi, áhrifaríkt og gefur mikla von. Við eigum svo flotta fulltrúa í ungmennaráðum á Íslandi. 

Mia og Karitas eru báðar einlægar, skemmtilegar og öflugar konur sem eru fyrirmyndir fyrir aðra.

Ungheill er vettvangur ungs fólks á aldrinum 13 – 25 ára til að  hafa áhrif á málefni barna og ungmenna – hér heima og á heimsvísu. Ungmennaráðinu er ætlað að berjast fyrir réttindum barna, í samræmi við stefnu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.

Stjórn Ungheilla samanstendur af 5 – 7 fulltrúum, sem funda að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Starfsárið fylgir skólaárinu og er frá september fram í maí. 

Heimasíða: https://barnaheill.is/ungheill/
Hver geta sótt um? Ungt fólk á aldrinum 13–25 ára – alls staðar af landinu. Fólk af öllum uppruna, með fjölbreytta reynslu og bakgrunn – rödd allra skiptir máli!Til að vera með í stjórn Ungheilla og hafa áhrif – skráðu þig á [email protected] eða sendu okkur skilaboð á Instagram @barnaheill.
Þessi þáttur er í boði:

-Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna. 

godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117

Mobility Aid:

Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma.

Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á [email protected]

Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is

Mobility Ehf og Sjúkratryggingar Ísland (SÍ) hafa gert samninga sín á milli um kaup á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum í ákveðnum flokkum fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.

-Sjónarhóls - Ráðgjafarmiðstöðin Sjónarhóll er fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir. Þjónustan er ókeypis og ekki er þörf á tilvísun. Það eru allir velkomnir.

Eitt helsta markmið Sjónarhóls er að stuðla að því að forráðamenn barna með stuðningsþarfir geti nýtt sér almenna lögbundna þjónustu og komist í samband við önnur úrræði sem gætu gagnast þeim.

sjonarholl.is

Childs Farm

Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína.

Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur. 

Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.

Sölustaðir:

Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið

ögn breytilegt eftir verslunum.


...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

4. vaktinBy Hlaðvarpið 4 vaktin