Hið yfirnáttúrulega

80. Samskiptaleiðir framliðna


Listen Later

Margar frásagnir víðs vegar um heiminn benda til þess að framliðnir geti, með ýmsum hætti reynt að senda skilaboð til okkar.

Ein algengasta leiðin er í gegnum drauma. Fólk lýsir því oft að hafa séð látna ástvini í draumi sem virðast óvenju raunverulegir, næstum eins og heimsókn frekar en ímyndun. Í slíkum draumum koma oft framliðnir með skilaboð til dreymanda.

Önnur algeng leið er svona rafræn truflun þar sem framliðnir geta haft áhrif á rafmagnstæki, látið ljós blikka eða hljóð sem birtast upp úr engu.

Einnig eru til sögur af því að framliðnir noti umhverfið til að vekja athygli, hlutir sem hreyfast, hurðir sem opnast eða lokast og jafnvel skyndileg breyting á hitastigi í herbergi. Fyrir þá sem upplifa slíkt getur það verið bæði ógnvekjandi og heillandi á sama tíma.

En hvernig eigum við að skynja slík samskipti? Sumir telja að lykillinn liggi í næmni okkar sjálfra. Fólk talar um innsæi sem getur hjálpað okkur að taka eftir því sem annars fer framhjá okkur. Þetta getur birst sem sterk tilfinning um nærveru, kuldahrollur án augljósrar ástæðu eða skyndileg tilfinning um að vera ekki einn.

Komdu í áskrift á

www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Mentioned in this episode:

Galdrabox

Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is

Ástargaldur
Hreinsunar og verndargaldur
Manifest galdur

d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Hið yfirnáttúrulegaBy Ghost Network®