
Sign up to save your podcasts
Or


„Skattalækkanir koma öllum til góða, allir eru nokkru bættari, en það er oft ekki mjög sýnilegt. Þegar nýjar opinberar stofnanir taka til starfa mæta fjölmiðlar á staðinn og taka myndir af dýrðinni, klippt er á borða og klingt í glösum. Þá er yfirleitt líka búið að gera því rækileg skil í fjölmiðlum þegar fyrsta skóflustungan var tekin. Enginn skálar í fjölmiðlum þegar skattar lækka; enginn klippti á borða þegar eignarskatturinn var klipptur af og enginn tók skóflustungu þegar erfðafjárskatturinn var kveðinn niður.Þess vegna er mikilvægt að við almennir borgarar höldum því á lofti sem vel er gert í skattamálum. “ Svona skrifaði Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, fyrir nokkrum árum en hún er gestur Skattaspjallsins í dag. Sigríður hefur verið ötull talsmaður skattgreiðenda og í ræðu og riti gagnrýnt útþenslu ríkisins og endalausar kröfur á skattgreiðendur. Í spjalli dagsins fer hún yfir þær áskoranir sem hún sér nú í gegnum störf sín sem alþingismaður og hvaða áskoranir áform nýrrar ríkisstjórnar setja á staðfestu fjárveitingavaldsins.
Hægt að er að fylgjast með starfi samtakana og skrá sig á póstlista á skattgreidendur.is og með því að fylgja samtökunum á Facebook eða X.
Hægt er að styrkja starf samtakanna hér: skattgreidendur.is/styrkja
By Samtök skattgreiðenda„Skattalækkanir koma öllum til góða, allir eru nokkru bættari, en það er oft ekki mjög sýnilegt. Þegar nýjar opinberar stofnanir taka til starfa mæta fjölmiðlar á staðinn og taka myndir af dýrðinni, klippt er á borða og klingt í glösum. Þá er yfirleitt líka búið að gera því rækileg skil í fjölmiðlum þegar fyrsta skóflustungan var tekin. Enginn skálar í fjölmiðlum þegar skattar lækka; enginn klippti á borða þegar eignarskatturinn var klipptur af og enginn tók skóflustungu þegar erfðafjárskatturinn var kveðinn niður.Þess vegna er mikilvægt að við almennir borgarar höldum því á lofti sem vel er gert í skattamálum. “ Svona skrifaði Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins, fyrir nokkrum árum en hún er gestur Skattaspjallsins í dag. Sigríður hefur verið ötull talsmaður skattgreiðenda og í ræðu og riti gagnrýnt útþenslu ríkisins og endalausar kröfur á skattgreiðendur. Í spjalli dagsins fer hún yfir þær áskoranir sem hún sér nú í gegnum störf sín sem alþingismaður og hvaða áskoranir áform nýrrar ríkisstjórnar setja á staðfestu fjárveitingavaldsins.
Hægt að er að fylgjast með starfi samtakana og skrá sig á póstlista á skattgreidendur.is og með því að fylgja samtökunum á Facebook eða X.
Hægt er að styrkja starf samtakanna hér: skattgreidendur.is/styrkja