Sign up to save your podcasts
Or

Heilun snýst um að endurheimta þetta jafnvægi. Með því að vinna með orku og ásetning er markmiðið að styðja við náttúrulega getu líkamans til að stilla sig af. Aðferðir eins og Reiki, Englareiki, kristallaheilun og transheilun nálgast þetta á mismunandi hátt, en eiga það sameiginlegt að leitast við að róa taugakerfið, hreinsa orkuflæði og efla innri frið. Heilun þykir okkur magnað tól sem hjálpar okkur að ná ró og létta á orkulíkamanum, losa um orkustíflur og bæta flæðið og þá líður okkur betur.
Í transheilun er lögð áhersla á að fara í djúpt meðvitundarástand þar sem heilari stillir sig á tíðni og verður jarðsamband fyrir ljósverur og "lækna að handan". Unnið er með skýrum ásetningi um að fá heilun sem hentar fyrir þyggjandann á þessum tímapunkti og ávallt er unnið með orku eða ljósverum sem eru tengdar hæðstu tíðni, hinum æðsta kærleika og vinnum með ljósinu.
Sá sem er að heila er ekki heilarinn, heldur einungis millistykkið. Við tengjum okkur eins og útvarpsrás á ákveðna tíðni og gefum ljósverum aðgang að því að nota okkar líkama og orku til að koma heilun í gegn á þann sem á að taka við heiluninni. Þetta hljómar skrítið, en flestir hafa eflaust heyrt um "læknamiðla" en þetta er það sama nema við köllum þetta trans heilun, við ábyrgjumst aldrei lækningu og hvetjum fólk að leita til alvöru læknis ef það er eitthvað vandamál, en trans heilunin og þeir læknar að handan sem koma að heiluninni geta gert ansi mikið og margt, stundum kraftaverki líkast, en allt er orka, þeir jafna út orku og vinna með orkuflæði líkamans og oft á tíðum ef það hefur fest mikil neikvæð orka inn í líkamanum okkar þá getur það valdið sjúkdómum. Orkuvinna er því mjög mikilvæg til að halda öllu kerfinu í jafnvægi.
Markmiðið er ekki að „laga“ eitthvað, heldur að styðja líkamann og orkukerfið við að finna sitt eigið náttúrulega jafnvægi.
Taka skal fram að ALLIR hafa þennan hæfileika að geta heilað, þú getur heilað sjálfan þig. Það er ekkert eitt rétt og rangt í þessu, allt snýst þetta um ásetning, kraft og mátt hugans og orkuflæðið í líkamanum. Við getum læknað ansi margt í líkamanum okkar einungis með því að breyta hugsunum! Pælum aðeins í því!
Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
By Ghost Network®Heilun snýst um að endurheimta þetta jafnvægi. Með því að vinna með orku og ásetning er markmiðið að styðja við náttúrulega getu líkamans til að stilla sig af. Aðferðir eins og Reiki, Englareiki, kristallaheilun og transheilun nálgast þetta á mismunandi hátt, en eiga það sameiginlegt að leitast við að róa taugakerfið, hreinsa orkuflæði og efla innri frið. Heilun þykir okkur magnað tól sem hjálpar okkur að ná ró og létta á orkulíkamanum, losa um orkustíflur og bæta flæðið og þá líður okkur betur.