Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Þröstur Helgason dagskrárstjóri Rásar 1 úr bréfi Einars Helgasonar garðyrkjufræðings í Reykjavík til Ágústs Helgasonar bónda, alþingismanns og hreppstjóra í Grímsnesi og Birtingaholti. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.