Rokkland

Af litlum neista verđur oft mikiđ bál...


Listen Later

Ţorparinn Pálmi Gunnarsson hefur um árabil og rúmlega ţađ veriđ einn ástsćlasti söngvari landsins og hann er gestur Rokklands á morgun (22.09.2013)
Pálmi ólst upp á Vopnafirđi hjá mömmu sinni og systur umvafinn síld og sjómönnum. Hann fékk Bítlaćđi međ radio Luxeburg innan viđ fermingu og byrjađi snemma ađ spila á gítar, og síđan bassa međ hljómsveitum fyrir austan. Hann kom svo í bćinn og sló í gegn kornungur sem Júdas í fyrstu íslensku uppfćrslunni á Jesus Christ Superstar fyrir rúmum 40 árum. Skömmu síđar byrjađi hann ađ syngja međ Magnúsi Eiríkssyni og Mannakorn urđu til og eru enn ađ.
Pálmi söng Gleđibankann, fyrsta íslenska lagiđ sem fór í Júróvision áriđ 1986. Hann var mikill gleđimađur áđur fyrr en gafst síđan upp fyrir bakkusi og sagđi skiliđ viđ hann.
Hann er mikill náttúruunnandi, friđarsinni og veiđimađur eins og kemur fram í bókinni sem hann var ađ senda frá sér, gengiđ međ fiskum.
Til marks um vinsćldir Pálma enn ţann dag í dag má nefna ađ á safnplötunni Stuđ Stuđ Stuđ sem Sena gaf út fyrir tveimur árum syngur Pálmi 3 lög af 40, en voriđ 2011 stóđu Dr. Gunni og Rás 2 fyrir kosningu ţar sem mestu stuđlög ţjóđarinnar voru valin og efstu lögin voru gefin út á ţessu safni, Stuđ, stuđ stuđ. Og lagiđ sem er í fyrsta sćti vinsćldalista Rásar 2 um ţessar mundir er nýjasta lagiđ hans Pálma; Núna!
Íslenska ţjóđin er búin ađ synga međ Pálma í 40 ár og hluti ţjóđarinnar söng međ Pálma á tónleikum í Eldborg í Hörpu fyrir tveimur vikum, lög eins og Samferđa, Ó ţú, Af litlum neista, Jesús Kristur og ég, Gleđibankinn, Ţorparinn, Í kirkju, Hvers vegna varstu ekki kyrr ofl.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

RokklandBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Rokkland

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners