Á tónsviðinu

Afmæli Reykjavíkurborgar


Listen Later

Það var 18. ágúst 1786 sem Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi. Þess vegna er litið á þann dag sem afmælisdag Reykjavíkur og menningarnótt haldin í borginni þann laugardag sem er næstur 18. ágúst. Flutt verða nokkur tónverk sem tengjast Reykjavíkurborg og öll nema eitt eru eftir tónskáld sem fæddust í Reykjavík. Tónskáldin eru Sigvaldi Kaldalóns, Sigfús Halldórsson, Jórunn Viðar, Atli Heimir Sveinsson og Jón Þórarinsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Guðni Tómasson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV