Ágætis byrjun - þættir úr menningarsögu fullveldisins Íslands
Umsjón: Guðni Tómasson.
5. þáttur. 1958-1967
Í útvarpsþáttunum Ágætis byrjun ferðast hlustendur í gegnum síðustu hundrað ár af listsköpun landans. Í hverjum þætti verða tekin fyrir nokkur lykilverk úr helstu listgreinum, sem urðu til á hverjum áratug fyrir sig. Kunnáttufólk um menningarsögu þjóðarinnar segir frá þróun, formbyltingum og nýjungum og raddir listamanna úr safni Ríkisútvarpsins hljóma á ný. Umsjón hefur Guðni Tómasson en lesari er Sigríður Halldórsdóttir.
Viðmælendur í þessum þætti voru Ástráður Eysteinsson, Magnús Þór Þorbergsson, Æsa Sigurjónsdóttir og Dagný Kristjánsdóttir. Að viku liðinni verða næstu tíu ár tekin fyrir: 1968-1977.