Á tónsviðinu

Allraheilagramessa


Listen Later

Allraheilagramessa er 1. nóvember og daginn eftir, 2. nóvember, er önnur messa nátengd hinni: allrasálnamessa. Í þættinum „Á tónsviðinu“ 1. nóvember verður flutt tónlist sem tengist þessum tveimur messum. Þar á meðal er messutónlist eftir William Byrd, hin þekkta Litanía eftir Franz Schubert, sönglagið „Allerseelen“ eftir Richard Strauss og Equali fyrir fjórar básúnur eftir Ludwig van Beethoven. Í Englandi tíðkaðist lengi að fátæk börn færu á milli húsa á allrasálnamessu og syngju söngva, en í staðinn fengu þau svokallaðar „sálarkökur“, kringlóttar kökur sem aðeins voru bakaðar fyrir þetta tækifæri. Þetta var kallað „að fara að sála“ - „to go souling“ á ensku. Í þættinum verður sunginn einn af þeim söngvum sem venja var að syngja fyrir sálarköku. Lesari í þættinum er Jórunn Sigurðardóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV