Svona er þetta

Andri Snær Magnason


Listen Later

Gestur þáttarins er Andri Snær Magnason, rithöfundur. Orkumál hafa verið til umræðu í þessum þætti á undanförnum vikum, spurningar um fleiri vatnsaflsvirkjanir hafa verið ræddar, sömuleiðis vangaveltur um aðra orkukosti eins og vindorku og kjarnasamruna. Talað hefur verið um að orkuskortur blasi við, ekki síst í ljósi nýrra markmiða um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040 eða eftir átján ár. Það markmið virðist óraunhæft nema eitthvað mikið breytist í nýtingu þeirrar orku sem þegar er framleidd í landinu. Ef ekkert breytist í þeim efnum kallar kolefnishlutleysi á ríflega tvöföldun á orkuframleiðslu í landinu og ljóst er að slíkar framkvæmdir myndu kalla á harða umræðu um náttúruverndarsjónarmið en í síðasta þætti benti forstjóri Landsvirkjunar á að þau sjónarmið virtust takast á við loftlagssjónarmiðin og það markmið að ná kolefnishlutleysi á næstu áratugum. Rætt er við Andra Snæ Magnússon um þessa flóknu mynd sem virðist vera að teiknast upp í orku-, umhverfis- og loftslagsmálunum hér á landi.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Svona er þettaBy RÚV

  • 4.5
  • 4.5
  • 4.5
  • 4.5
  • 4.5

4.5

2 ratings