Fríhöfnin

Árin 1928-1938


Listen Later

Umfjöllunarefni níunda þáttar eru fréttir áratugarins 1928 - 1938. Fjallað er almennt um fréttalandslagið en jafnframt hugað sérstaklega að tveimur ákveðnum málum. Árið 1934 voru gerðar mikilvægar breytingar á almennum kosningarétti með lögum nr. 18/1934 þegar ákvæði um að svipta fólk kosningarétti vegna þegins sveitarstyrks var afnumið. Ári fyrr komst Adolf Hitler og nasistaflokkur hans til valda í Þýskalandi, á Ítalíu ríkti Benito Mussolini og hafði gert frá því snemma á þriðja áratugnum og í lok þessa áratugar, nánar tiltekið 1939 komst Fransisco Franco til valda á Spáni. Allir aðhylltust þessir leiðtogar einhverskonar fasíska stjórnarhætti og það er óhætt að segja að áratugurinn sem hér um ræðir, 1928-1938 sé svo að segja brennimerktur af fasisma og uppgangi hans í Evrópu. Gestir þáttarins eru Guðmundur Hálfdánarson, Jón Trausti Reynisson, Kristrún Heimisdóttir og Ragnheiður Kristjánsdóttir. Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

FríhöfninBy RÚV