Fjallað er um ýmis fréttamál og fréttaflutning frá fullveldistímanum með dyggri aðstoð fréttafólks og annarra málsmetandi álitsgjafa. Sjónum er beint að innlendum jafnt sem erlendum fréttum sem varpað geta ljósi á hvern og einn áratug aldarinnar 1918 - 2018, auk þess sem hugað verður að þróun fréttaflutnings og miðlun frétta á þessu tímabili.
Umfjöllunarefni fjórða þáttar eru fréttir áratugarins 1978 - 1988. Þar verður hugað sérstaklega að fréttum af forsetakjöri Vigdísar Finnbogadóttur árið 1980 og afdrifum Kalda stríðsins sem tók nýja stefnu með leiðtogafundi Ronald Reagan og Mikhail Gorbachev árið 1986 í Höfða og lauk með táknrænum hætti árið 1989 með falli Berlínarmúrsins. Ennfremur verður litið almennt til þróunar fréttaflutnings og miðlunar frétta á þessu tímabili. Gestir þáttarins eru Elísabet Jökulsdóttir, Óðinn Jónsson, Silja Bára Ómarsdóttir og Styrmir Gunnarsson.
Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.