Fréttamál á fullveldistíma.
Fjallað er um ýmis fréttamál og fréttaflutning frá fullveldistímanum með dyggri aðstoð fréttafólks og annarra málsmetandi álitsgjafa. Sjónum er beint að innlendum jafnt sem erlendum fréttum sem varpað geta ljósi á hvern og einn áratug aldarinnar 1918 - 2018, auk þess sem hugað verður að þróun fréttaflutnings og miðlun frétta á þessu tímabili.
Umfjöllunarefni fyrsta þáttar eru fréttir áratugarins 2008 - 2018. Sérstaklega er hugað að fréttum um íslenska efnahagshrunið og loftslagsbreytingar af mannavöldum en einnig er litið almennt til þróunar fréttaflutnings og miðlun frétta á þessu tímabili. Gestir þáttarins eru Bergur Ebbi Benediktsson, Björn Malmquist, Fríða Björk Ingvarsdóttir og Þóra Arnórsdóttir.
Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.