Alþýðusamband Íslands og Isavia hafa gert með sér samstarfssamning um miðlun upplýsinga til erlends launafólks um íslenskan vinnumarkað, kjarasamninga og réttindi og skyldur.
María Lóa Friðjónsdóttir og Halldór Grönvold sem halda utan um verkefnið Einn réttur - ekkert svindl! og vinnustaðaeftirlit ASÍ segja frá samstarfinu og mikilvægi þess.