Þriggja þátta röð um Auði Sveinsdóttur á Gljúfrasteini. Strammaskáldið Auður. Umsjónarmaður: Marta Guðrún Jóhannesdóttir. Fjallað um verk Auðar Sveinsdóttur á Gljúfrasteini, skotthúfuna sem hún hlaut Álafossverðlaunin fyrir árið 1970, Maríuklæðið og fleiri verk ásamt skrifum hennar um hannyrðir, textílverk, ull og fleira í tímaritinu Melkorku, Þjóðviljanum og Hug og hönd. Rætt við samferðafólk Auðar og aðra sem fylgdust með verkum hennar.