Sign up to save your podcasts
Or

Í þessum þætti fáum við til okkar doktorsnema við Menntavísindasvið, þær Kriselle Lou Suson Jónsdóttur og Önnu Katrínu Eiríksdóttur sem rannsaka fjöltyngi, máluppeldi og samstarf fjölskyldna og skóla í íslensku samfélagi. Þær byggja rannsóknir sínar meðal annars á reynslu fjölskyldna, nemenda og kennara um allt land og varpa ljósi á hvernig styðja má betur við börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.
Kriselle fjallar um fjöltyngt máluppeldi og hlutverk foreldra í síbreytilegu málumhverfi barna á Íslandi, en Anna Katrín ræðir mikilvægi góðs samstarfs heimila og skóla og hvernig hnitmiðuð samskipti geta haft jákvæð áhrif á nám og líðan nemenda. Þær benda jafnframt á þann mikla styrk og auð sem felst í fjölbreyttri tungumálakunnáttu og bakgrunni barna og fjölskyldna þeirra.
By MenntavísindavarpiðÍ þessum þætti fáum við til okkar doktorsnema við Menntavísindasvið, þær Kriselle Lou Suson Jónsdóttur og Önnu Katrínu Eiríksdóttur sem rannsaka fjöltyngi, máluppeldi og samstarf fjölskyldna og skóla í íslensku samfélagi. Þær byggja rannsóknir sínar meðal annars á reynslu fjölskyldna, nemenda og kennara um allt land og varpa ljósi á hvernig styðja má betur við börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.