Á tónsviðinu

Beethoven og Ghoethe


Listen Later

Tónskáldið Ludwig van Beethoven og skáldið Johann Wolfgang von Goethe voru samtíðarmenn þó að Goethe væri rúmum 20 árum eldri, fæddur 1749, en Beethoven 1770. Beethoven var mikill aðdáandi Goethes og samdi mörg lög við ljóð eftir hann. Árið 1812 hittust þeir í fyrsta skipti, en þótt þeir væru báðir miklir listamenn og bæru virðingu hvor fyrir öðrum voru þeir ólíkir persónuleikar og samfundirnir gengu ekki eins vel og ætla mætti. Flutt eru nokkur sönglög Beethovens við ljóð eftir Goethe og einnig Egmont-forleikurinn sem Beethoven samdi við leikrit eftir hann og kantatan „Meeresstille und glückliche Fahrt“, samin við tvö ljóð eftir Goethe. Þá verða lesin brot úr bréfum Beethovens, Goethes og Bettinu Brentano sem hafði milligöngu um að þeir hittust. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson, Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Leifur Hauksson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV