Á tónsviðinu

Béla Bartók


Listen Later

Ungverska tónskáldið Béla Bartók fæddist árið 1881 og Elza systir hans fjórum árum seinna. Árið 1903, þegar Bartók var tuttugu og tveggja ára gamall, fór hann að kalla systur sína Böske. Í því var fólgin pólitísk yfirlýsing. Bartók vildi sýna þjóðrækni sína og andstöðu við austurrísk yfirráð með því að gefa nafni systur sinnar ungverskari hljóm. Á þessum tíma samdi hann líka sinfóníu sem hann helgaði ungversku frelsishetjunni Kossuth. Og árið 1905 hóf hann að safna ungverskum þjóðlögum og notaði mörg þeirra sem uppistöðu í verk sín. Í þættinum „Á tónsviðinu“ verða leikin verkin „Kossuth“ og „15 ungverskir sveitasöngvar og -dansar“ eftir Bartók og lesin verða brot úr bréfum hans til móður sínnar og systur þar sem hann hvetur þær til að hætta að tala þýsku saman og tala heldur ungversku. Lesarar eru Eiríkur Guðmundsson og Jórunn Sigurðardóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV