Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Sturla Sigurðarson, tónlistarmaður, starfsmaður hjá Bíóparadís og aðstoðarmaður hjá NPA miðstöðinni úr bréfi Jóns Jónssonar Víðis, landmælingamanns til Benedits Jónssonar frá Auðnum. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.