— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) —
Dungeons & Dragons er spil sem flestir nördar hafa spilað eða í það minnsta heyrt um. Fyrr á árinu kom út kvikmyndin Dungeons & Dragons: Honor Among Thieves en myndin fékk frábæra dóma og vakti mikla athygli.
Í tilefni þess þá datt Hafsteini í hug að fá til sín þrjá nörda til að útskýra spilið og söguna á bakvið það. Björn Elíeser, Sigurður Trausti og Davíð Máni eru miklir D&D áhugamenn og hafa þar að auki séð myndina.
Í þættinum ræða þeir meðal annars reglurnar í spilinu, söguna á bakvið sjálft spilið, hversu lélegar gömlu myndirnar eru, hversu vel heppnuð nýja myndin er og margt fleira.
Þátturinn er 140 mínútur.
Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is