Kynstrin öll

Birna Gústafsson


Listen Later

Unaður hefur ekki alltaf verið umræðuefni sem nær máli í jafnréttisbaráttunni. Það er sannarlega auðvelt að afgreiða unað sem munað og forgangsraðað formlegri afkimum baráttunnar, á borð við launamun kynjanna og skiptingu heimilisstarfa, framar en mikilvægi kynlífs og nautna hverskonar. Reynslan hefur þó kennt baráttufólki að kynjuð nálgun í samskiptum er alls ekki skilin eftir fyrir utan svefnherbergisdyrnar. Í rúminu hafa fullnægingar karla jafnan þótt sjálfsagðar en fullnægingar kvenna einhverskonar fjallganga. Þrekraun þar sem ekki allir komast upp á topp. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar í þessum efnum á skömmum tíma og umræðan um kynlíf, nautn og fantasíur gjörbreyst. Þrátt fyrir það hafa kynferðismál hinseginfólks fengið litla sem enga umfjöllun í fjölmiðlum og oft vill vera að opinbert samtal um kynlíf einskorðist við kynlíf gagnkynja para. Kynfræðsla innan skólakerfisins snýst meira um líffræði og smitsjúkdóma en líðan og ánægju - og lítið fer fyrir því að kynlíf sé rætt sem sjálfsagður hlutur í lífi fullorðins fólks þar sem enginn er þó fullnuma fyrr en ævin er á enda. Gestur þáttarins er Birna Gústafsson kynfræðingur sem segist líta á kynferðislegan unað sem mannréttindi, ekki óþarfa dekur. Hún heldur úti hlaðvarpi um kynlíf og tekur að sér fræðslu fyrir fullorðið fólk um blæti, kynlífstæki, fullnægingar og allt annað sem tengist þessu víðfeðma sviði.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Kynstrin öllBy RÚV