Gestur þáttarins er Bjarni Snæbjörnsson leikari sem þessa dagana sýnir verkið Góðan daginn faggi fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúskjallaranum. Í viðtalinu ræðir hann um það þegar hann áttaði sig á því að hann væri fullur af sjálfsfyrirlitningu og skömm þrátt fyrir að tuttugu ár væru síðan hann væri kominn út úr skápnum sem hommi.