Tónskáldið Frédéric Chopin samdi fjölmarga dansa fyrir píanó: masúrka, pólónesur og ekki síst valsa. Aðeins er þó vitað um einn menúett eftir hann og er hann 2. kafli í píanósónötu nr.1 í c-moll sem Chopin samdi 18 ára gamall árið 1828. Þessi sónata hefur fallið í skuggann af seinni sónötum Chopins og heyrist fremur sjaldan. Hún hljómar í þættinum og einnig eru leiknir ýmiss konar dansar eftir Chopin, þar á meðal tveir valsar sem talið er vafasamt að Chopin hafi samið þótt þeir hafi verið eignaðir honum.