Fjallað er um Clöru Schumann, en á þessu ára eru 200 ár frá fæðingu hennar. Clara var eiginkona tónskáldsins Roberts Schumann og hann tileinkaði henni mörg af verkum sínum. Hún var líka tónskáld sjálf og einn besti píanóleikari 19. aldar. Í þættinum verða leikin verk eftir Clöru og sagt verður frá ævi hennar sem var afar viðburðarík. Una Margrét Jónsdóttir hefur umsjón með þættinum og lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Anna Marsibil Clausen.