Eins og flestir vita hafa margir listamenn lagt sitt af mörkum til þess að reyna að gera fólki lífið bærilegra á tíma Covid-faraldursins og nýlega hafa komið út geislaplötur með tónlist sem tengist faraldrinum beint eða óbeint. Þar á meðal eru hljómdiskarnir „Songs of Comfort & Hope“ (Söngvar um huggun og von) og „Isolation songbook“ (Einangrunarsöngbókin). Á fyrrnefndu geislaplötunni leika sellóleikarinn Yo-Yo Ma og píanóleikarinn Kathryn Stott hugljúf lög, en á hinum síðarnefnda flytja söngvararnir Helen Charlston og Michael Craddock og píanóleikarinn Alexander Soares sönglög sem beinlínis voru samin með Covid-faraldurinn í huga. Flutt eru lög af þessum geislaplötum og einnig tónverk frá fyrri öldum sem samin voru á tíma drepsóttar. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.