Á tónsviðinu

Dansar eftir Mosart og Beethoven


Listen Later

Í þættinum verða leiknir dansar eftir Wolfgang Amadeus Mozart og Ludwig van Beethoven. Mozart hafði mjög gaman af að dansa og í bréfi sem hann skrifar föður sínum árið 1783 segir hann frá dansleik sem hann hélt sjálfur, en ballið hófst klukkan 7 að kvöldi og endaði klukkan 6 um morguninn. Mozart samdi líka fjölmarga dansa og sumir þeirra hafa auknefni eins og „Sleðaferðin“, „Þrumuveðrið“ og „Bardaginn“. Beethoven hafði líka gaman af dansi og bæði tónskáldin sömdu danstónlist fyrir almenna dansleiki í keisarahöllinni í Vín. Nokkrir af þessum dönsum verða leiknir í þættinum og einnig atriði úr óperu Mozarts „Don Giovanni“ þar sem dansar koma mikið við sögu.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV