Árið 1917 kom franska tónskáldið Darius Milhaud til Brasilíu, en þar starfaði hann næstu tvö árin sem ritari franska sendiherrans. Milhaud kynntist þar brasilíska tónskáldinu Heitor Villa-Lobos og varð fyrir áhrifum frá tónlist landsins. Skömmu eftir Brasilíudvöl sína samdi Milhaud verkið „Saudades do Brasil“, en verkið skiptist í 12 kafla sem eru ýmist í tangó- eða sömbutakti og heita í höfuðið á tilteknum stöðum í Brasilíu. Villa-Lobos byrjaði hins vegar að semja verkið „Uirapurú“ árið 1917, sama ár og þeir Milhaud kynntust, en lauk því ekki fyrr en 1934. Það er balletttónlist og nafnið vísar til söngfugls í Brasilíu. Þessi verk verða flutt í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 22. október ásamt smærri verkum eftir tónskáldin tvö. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.