Á tónsviðinu

Dísella Lárusdóttir


Listen Later

Nýlega fékk hljómdiskur með óperunni „Akhnaten“ eftir Philip Glass Grammy-verðlaunin fyrir bestu óperuupptökuna, en sópransöngkonan Dísella Lárusdóttir fer með eitt af aðalhlutverkum óperunnar. Í tilefni af þessu er þátturinn helgaður Dísellu og leiknar eru upptökur með söng hennar úr safni Ríkisútvarpsins. Meðal annars verða flutt atriði úr óperunum „Ástardrykknum“ eftir Gaetano Donizetti og „La Traviata“ eftir Giuseppe Verdi, lag úr söngleiknum „Birtingi“ eftir Leonard Bernstein, og ljóðalög eftir Richard Strauss og Johannes Brahms. Einnig eru flutt atriði úr Grammy-verðlaunaupptökunni af óperunni „Ahnaten“, en öll óperan verður á dagskrá Rásar 1 á uppstigningardag, 26. maí 2022. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV