Rokkland vikunnar er helgađ nokkrum náungum sem eiga ţađ sameiginlegt ađ hafa slitiđ barnsskónum fyrir margt löngu. Einn í Winnipeg í Kanada, Einn í Cass County í Texas, einn í Vestmannaeyjum, einn í Sheffield og einn á Norđur-Englandi nálćgt Newcastle.
Fyrsti gesturinn er Richard Hawley frá Sheffield, 48 ára gamall gítarleikari, söngvari, lagasmiđur og upptökustjóri svo eitthvađ sé nefnt. Hann á marga ađdáendur á Íslandi ţó ţađ fari kannski ekki svo mikiđ fyrir ţeim. Hann sendi nýlega frá sér plötuna Hollow Meadows og viđ heyrum lög af henni auk ţess sem viđ rifjum upp símaviđtal sem ég átti viđ hann ţegar síđasta plata kom út fyrir ţremur árum.
Svo er ţađ Don Henley ? trommari og söngvari úr Eagles. Sá sem syngur Hotel California. Hann er orđinn 68 ára gamall og var ađ senda frá sér fyrstu plötuna í 15 ár. Hún heitir Cass County eftir gömlu sveitinni sem hann ólst upp í - í Texas. David Fricke hjá Rolling Stone gaf plötunni 4 stjörnur af 5. Viđ heyrum af plötunni og lög af henni í ţćttinum.
Brian Johnsson söngvari AC/DC kemur líka viđ sögu, en hann er jafnaldri Don Henley.
Eiđur Arnarsson fyrrum útgáfustjóri hjá Skífunni og Senu skrifađi áhugaverđan pistil um tónlist á netinu ? tekjumöguleika tónlistarmanna í dag miđađ viđ áđur ofl. Eiđur er tónlistarmađur (bassaleikari Todmobile), tónleikahaldari, framkvćmdastjóri Félags hljómplötuframleiđenda og starfar einnig viđ stafrćna dreifingu tónlistar.
Í greininni segir hann ma: "Tónlistin er líklega sú listgrein sem viđ getum fćst lifađ án. Hún er alltumlykjandi. Hún er hljóđrás lífs okkar flestra. Framtíđ íslenskrar tónlistar er best tryggđ međ ţví ađ neyta hennar og njóta löglega, á ţann hátt sem tryggir réttlátt endurgjald til handa ţeim sem skapa hana". Eiđur heimsćkir Rokkland.
Svo heyrum viđ undir lok ţáttarins í afmćlisbarni vikunnar ? STÓR-afmćlis-kalli vikunnar ? Neil Young sem, varđ sjötugur í vikunni.