Dulrænar sögur er þriggja þátta röð þar sem rætt er við fólk sem hefur upplifað eða orðið fyrir yfirnáttúrulegum eða óútskýranlegum atburðum. Umsjónarmenn: Halldór Óli Gunnarsson og Bjarki Sigurjónsson.
Í öðrum þætti er fjallað um draugasögur úr Hvítárnesskála. Hvítárnesskáli sem er við Kjalveg er eitt elsta sæluhús Íslands, en allt frá byggingu þess árið 1930 telja margir sig hafa orðið vara við reimleika í skálanum.
Viðmælendur: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Pétur Þorleifsson.