Þegar þú hefur afplánað refsingu í fangelsi áttu að koma út betraður og fá annan séns. Það er þó ekki alveg svo einfalt. Í þáttunum skoðum við hvernig það er að ljúka fangelsisvist á Íslandi; hvað tekur á móti fyrrverandi föngum þegar þeir stíga út í samfélagið að nýju. Á Íslandi er talað um betrunarvist í fangelsum en ekki bara refsivist. Í fyrsta þætti skoðum við hvað felst í fangelsisvist hér á landi, hvað í kerfinu er hugsað sem betrun og hvaða áhrif fangelsisvist hefur á hæfni einstaklinga til að taka þátt í samfélaginu að afplánun lokinni. Rætt er við Pál Winkel fangelsismálastjóra, Guðmund Inga Þóroddsson, fanga og formann Afstöðu, Maríu Jónsdóttur og Ragnhildi Ólafsdóttur, náms- og starfsráðgjafa hjá Vinnumálastofnun, og Kristjón Kormák Guðjónsson, ritstjóra DV. Umsjón: Aðalsteinn Kjartansson.