Eftirstríðsárin - 1.þáttur // Hernámið & upplifun íbúa
Keflavík var samfélag í mótun þegar Bretar hernámu Ísland á vormánuðum 1940. Kornungir breskir hermenn tóku sér stöðu fyrir utan símstöðuna í bænum með byssusting og hjálm í laginu eins og súpuskál. Hvernig tóku heimamenn í það?
Hlaðvarpið Eftirstríðsárin skoðar upphaf hernáms Breta á Íslandi, menningarleg áhrif veru Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli eftir seinni heimsstyrjöldina og hvernig sambúðin við heimafólk gekk.
Leik- og söngkonan Jana María er sögumaður í þessu nýja hlaðvarpi um stríðsárin í Keflavík og áhrif menningar Bandaríkjahers á menningu á Suðurnesjum. Jana María hefur um árabil unnið með þetta tímabil í sögu Íslands og skapað sögutónleika þar sem hún fléttar saman frásögn af þessum tíma í tali og tónum.
____
Hlaðvarpsserían Eftirstríðsárin er skrifuð og framleidd af Jönu Maríu Guðmundsdóttur, með stuðningi frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja og Menningarsjóði Reykjanesbæjar 2025.
Hugmynd, handrit, hljóðvinnsla og upplestur: Jana María Guðmundsdóttir Viðmælendur: Bergþóra Bergsteinsdóttir og Erna Sigurbergsdóttir Hlaðvarpið er aðgengilegt á www.janamaria.art og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
©Allur réttur áskilinn 2025.