Eftirstríðsárin

Eftirstríðsárin 3.þáttur - Kaninn kemur


Listen Later

Eftirstríðárin - 3. Þáttur // Kaninn kemur 

Bærinn fékk á sig allt annan blæ þegar Bandaríkjaher tók við af Bretum. Umsvif þeirra voru langt um meiri, þeir voru fleiri og þóttu almennt meira sjarmerandi. Áður en langt um leið var búið að byggja herflugvöll á Miðnesheiði og nóg af vinnu að fá fyrir hvern þann sem vildi. En svo lauk stríðinu....

Hlaðvarpið Eftirstríðsárin skoðar upphaf hernáms Breta á Íslandi, menningarleg áhrif veru Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli eftir seinni heimsstyrjöldina og hvernig sambúðin við heimafólk gekk. 
 
Leik- og söngkonan Jana María er sögumaður í þessu nýja hlaðvarpi um stríðsárin í Keflavík og áhrif menningar Bandaríkjahers á menningu á Suðurnesjum. Jana María hefur um árabil unnið með þetta tímabil í sögu Íslands og skapað sögutónleika þar sem hún fléttar saman frásögn af þessum tíma í tali og tónum. 
 ____
 
Hlaðvarpsserían Eftirstríðsárin er skrifuð og framleidd af Jönu Maríu Guðmundsdóttur, með stuðningi frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja og Menningarsjóði Reykjanesbæjar 2025. 
 
Hugmynd, handrit, hljóðvinnsla og upplestur: Jana María Guðmundsdóttir Viðmælendur: Bergþóra Bergsteinsdóttir og Erna Sigurbergsdóttir Hlaðvarpið er aðgengilegt á www.janamaria.art og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.  

©Allur réttur áskilinn 2025.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

EftirstríðsárinBy Jana Maria Gudmundsdottir