Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Signý Pálsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála hjá Reykjavíkurborg úr skýrslu Hjúkrunarnefndar um stöðu í bakaríum og brauðgerðarhúsum í nóvember 1918. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.