Lög um ástina sem var en er ekki lengur verđa í ađalhlutverki í Rokklandi vikunnar.
Óli Palli veltir sér upp úr ástinni í fyrri hluta ţáttarins í tilefni Valentínusardags sem var á föstudaginn (14. febrúar). Ţađ er nóg til af lögum um ástina og ástfangiđ fólk en hér er fókusinn settur á lög um ástina ţar sem annar ađilinn er ekki lengur til stađar, farinn ? búinn ađ kveđja, segja bless af einhverjum ástćđum. En vandamáliđ er ađ hinn ađilinn getur bara ekki sćtt sig viđ stöđuna. Ţađ getur orđiđ ansi mikill hiti á slíkum stundum, og í mörgum tilfellum í gegnum aldirnar og árţúsundin hefur fólk hreinlega tapađ vitinu og ađrir sjálfu lífinu. Flestir jafna sig nú, amk. međ tímanum og hlćja jafnvel ađ sjálfum sér ađ einhverjum tíma liđnum. En međan ţetta ástand varir er lífiđ blátt og brotthćtt og margir mögnuđustu lagahöfundar heims hafa jafnvel samiđ sín bestu lög í ţessu ástandi.
Á međal tónlistarmanna sem koma viđ sögu í ástar-hluta ţáttarins má nefna Elvis, Bubba, Röggu Gísla, Radiohead, Jackson 5, Bob Dylan, Sinéad O´Connor, Cardigans, Ettu James og meira ađ segja John Travolta.
Sérstakir gestir ţáttarins eru Kamilla Ingibergsdóttir kynningarstjóiri Iceland Airwaves, Hjalti Jón Sverrison stofnandi Facebook grúppunnar Ţrumur í Ţokunni, Kristinn Pálsson tónlistarfrćđingur og Páll Ragnar Pálsson tónskáld og gítarleikari úr Maus. Ţau velja öll lag í ţáttinn og segja frá laginu.
Nina Persson söngkona sćnsku hljómsveitarinnar The Cardigans sendi nýveriđ frá sér sína fyrstu sólóplötu og hún kemur viđ sögu í seinni hluta ţáttarins.