Rokkland

Ekki hvađ ţú getur, heldur hvađ ţú gerir


Listen Later

Ţegar Einar Örn Benediktsson sagđi í kvikmyndinni Rokk í Reykjavík áriđ 1982: „Ţađ skiptir ekki máli hvađ ţú getur, heldur hvađ ţú gerir“ - hafđi ţađ áhrif á fjölda ungs fólks og í kjölfariđ spruttu upp hljómsveitir um allt land.
Ţann 8. mars síđastliđinn voru 35 ár liđin frá ţví ađ hljómsveitin Purrkur Pillnikk var stofnuđ í Reykjavík af fjórum ungum Reykvíkingum. Ţađ var ćft einu sinni, 8-9 lög urđu til á ćfingunni og svo var spilađ á tónleikum í M.H. daginn eftir.
18 viđburđarríkir mánuđir
Purrkur Pillnikk er lykilhljómsveit í íslensku tónlistarsögunni og tveir af liđsmönnum sveitarinnar eru gestir Rokklands í dag, ţeir Einar Örn og Bragi bassaleikari. Viđ ćtlum ađ hlusta saman á alla fyrstu plötuna, litlu 10 laga plötuna Tilf sem kom út um voriđ 1981. Ţá voru strákarnir Einar Örn, Bragi, Friđrik og Ásgeir flestir 17 ára gamlir. Sveitin var starfandi í eitt og hálft ár og gaf út á ţeim tíma einar 5 plötur ? fór í tónleikaferđ um Bretland međ The Fall og fleira.
Brautryđjandans George Martin minnst
George Martin upptökustjóri Bítlanna lést í vikunni á heimili sínu, 90 ára ađ aldri. Hann hafđi gríđarleg áhrif á tónlistarlíf alls heimsins. Hann tók sénsinn á Bítlunum ţegar allir ađrir sögđu nei. Hann heyrđi eitthvađ í ţeim og var svo međ ţeim frá byrjun og til enda. Tók upp međ ţeim fyrsta lagiđ ? Love me do og síđustu plötuna; Abbey Road. Hann var í Frćgđarhöll rokksins, Elísabet drottning ađlađi hann og hann hlaut um ćvina 6 Grammy-verđlaun.
Hann er fyrsti upptökustjórinn sem heimurinn vissi hvađ hét. Hann ruddi brautina fyrir ţá sem á eftir honum komu, var fyrirmynd allt til enda og hans verđur minnst í Rokklandi dagsins.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

RokklandBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Rokkland

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners