Í Rokklandi í dag (15.09.2013) verđur bođiđ upp á eđalmúsík međ fólki eins og Nancy Sinatra, Beach Boys, Jonathan Wilson, Mark Lanegan, Pálma Gunnarssyni og Wilco.
Pálmi Gunnarsson sem hélt vel heppnađa tónleika í trođfullri Eldborg síđasta laugardagskvöld kemur ađeins viđ sögu. Tónleikarnir hans voru teknir upp fyrir Rás 2 og viđ heyrum ţá síđar. Og í Rokklandi eftir viku verđur Pálmi í ađalhlutverki.
Í ţćtti ţessarar viku heyrum líka ađeins í hinum mikla meistara Don Randi sem er píanóleikari og hluti af hinu alrćmda "Wrecking Crew", stúdíóbandinu sem spilađi inná allar plöturnar í Los Angeles á sjöunda og áttunda áratugnum međ Stevie Wonder, Elvis, Frank Sinatra, Beach Boys og Michael Jackson svo eitthvađ sé nefnt. Don Randi spjallađi viđ Rokkland í fyrra um samstarfiđ viđ Brian Wilson og Phil Spector t.d.
Bandaríski söngvarinn Mark Lanegan, fyrrum söngvari gruggsveitarinnar Screaming Trees verđur međ tónleika í Fríkirkjunni 30. nóvember nk (sem uppselt er á) og í Rokklandi heyrum viđ lög af splunkunýrri plötu frá honum sem kemur út á mánudaginn. Ţar syngur hann međ sínu nefi lög sem heyrđust í steríóinu á ćskuheimili hans. Lög sem Andy Williams, Frank Sinatra og Nancy SInatra sungu í ţá daga.
Nels Cline heitir hann gítarsnillingurinn sem spilar međ bandarísku hljómsveitinni Wilco. Hann var međ Yoko Ono á Airwaves 2011 og ţar spjallađi hann viđ Rokkland, t.d. um ţađ hvernig hann endađi í Wilco, ţeirri mögnuđu hljómsveit.
Danska sćkadelíu-rokksveitin Spids Nogenhat kemur líka viđ sögu, sem og Bandaríkjamađurinn Jonathan WIlson sem ćtlar ađ spila á Íslandi síđar í haust, en hann sendir frá sér nýja plötu í október og ţar ađstođa hann nokkrir vinir. Menn eins og David Crosby og Graham Nash, Roy Harper ofl.